Vann glænýjan Benz-rafbíl

Ingveldur fær afhentan glænýjan Mercedes-Benz B-Class 250e síðar í dag.
Ingveldur fær afhentan glænýjan Mercedes-Benz B-Class 250e síðar í dag.

Ingveldur Thorarensen úr Hafnarfirði datt heldur betur í lukkupottinn í morgun þegar nafn hennar var dregið út í áskriftarleik Morgunblaðsins. 

Hún hlýtur gefins glænýjan Mercedes-Benz B 250e-rafbíl en dregið var í beinni útsendingu hjá Sigga Gunnars á útvarpsstöðinni K100. 

Ingveldur ætlaði varla að trúa sínum eigin eyrum þegar Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, hringdi í hana og sagði henni að nafn hennar hefði verið dregið út. 

Hún mætir í Öskju síðar í dag og tekur við bílnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert