Talsvert um ölvun og óspektir í Leifsstöð

Talsvert hefur verið að gera hjá lögreglunni á Suðurnesjum vegna …
Talsvert hefur verið að gera hjá lögreglunni á Suðurnesjum vegna ölvunar farþega síðustu daga. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Lögreglan á Suðurnesjum hefur þurft að sinna þó nokkrum málum sem tengjast ölvun og óspektum flugfarþega í Leifsstöð síðustu sólarhringa. 

Þrír ofurölvi farþegar áreittu samferðafólk sitt í fluginu á leiðinni til landsins í fyrrinótt. Þeir voru sofnaðir þegar lögreglumenn komu um borð í flugvélina og brugðust illa við þegar þeir voru vaktir. Einn þeirra neitaði að framvísa skilríkjum og var hann færður á lögreglustöð. Hann fékk að fara þegar hann hafði sagt á sér deili.

Í fyrradag reyndist annar farþegi svo ölvaður að hann vissi ekki hvar í heiminum hann væri niðurkominn þegar lögregla ræddi við hann. Hann var aðstoðaður við að komast leiðar sinnar. Svipað ástand var á farþega sem lá sofandi milli innritunarvéla í flugstöðinni og hafði misst af flugi frá landinu.

Loks var tilkynnt um ölvaðan farþega í flugi á leið til landsins, sem hafði verið að áreita aðra farþega meðan á ferðinni stóð. Hann hugðist halda áfram til Helsinki þetta sama kvöld en flugstjóri neitaði að taka hann með vegna hegðunar hans í fyrra fluginu. Lögreglu barst svo önnur tilkynning vegna þessa sama farþega um nóttina þegar hann var farinn að áreita viðskiptavini í komuverslun 10 – 11 í flugstöðinni. Hann var handtekinn, færður á lögreglustöð og látinn sofa úr sér. Síðan var hann sektaður og honum sleppt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert