Bónus oftast með lægsta verðið

Mikil verðmunur reyndist vera á dömubindum í könnuninni og munaði …
Mikil verðmunur reyndist vera á dömubindum í könnuninni og munaði 227% á því dýrasta og ódýrasta. AFP

Bónus Korputorgi var oftast með lægsta verðið í nýrri verðkönnun ASÍ. Reyndist verðið vera lægst hjá Bónus í 44 tilvikum af 90, þar á eftir kom Víðir Skeifunni með lægsta verðið í 14 tilvikum. Iceland Engihjalla var hins vegar oftast með hæsta verðið, eða í 40 tilvikum, og Hagkaup Skeifunni þar á eftir með hæsta verð í 13 tilvikum.  

Flestar þeirra vörutegunda sem verðlagseftirlit ASÍ skoðaði í könnun sinni í matvöruverslunum fengust í Bónus eða 86 af 90. Næstflestar vörutegundir reyndust vera til í Fjarðarkaup, 85 af 90. Fæstar voru hins vegar til í Costco, eða 24 af 90.

227% verðmunur á dömubindum

Mestur verðmunur í könnuninni var á ódýrasta stykkjaverði af dömubindum, normal 3ja dropa með vængjum. Þau voru ódýrust í Bónus Korputorgi á 11 kr. stykkið, en dýrust á 36 kr. stykkið í Kjörbúðinni-Samkaup í Bolungarvík og í Iceland Engihjalla. Verðmunurinn var 25 kr. verðmunur eða 227%. Einnig var mikill verðmunur á Finish powerball uppþvottavélatöflum. Ódýrasta stykkjaverðið var 12 kr. í Costco, en hæst var verðið í Fjarðarkaupum, 29 kr. Verðmunurinn  var því 17 kr. eða 142%.

Mikill verðmunur var einnig á ódýrasta kílóverði á hveiti eða 147%. Lægsta var verðið í Bónus, 75 kr., en hæst í Víði  195 kr. Þá reyndist líka mikill munur á kílóverði af rauðum eplum. Reyndust þau ódýrust í Krónunni 170 kr., en dýrust. í Costco á 375 kr. Verðmunurinn er 205 kr., eða 121%. 

Könnunin var gerð  5. september og var framkvæmd samtímis í Bónus Korputorgi, Krónunni Höfða, Nettó Mjódd, Fjarðarkaupum, Kjörbúðinni-Samkaup Bolungarvík, Hagkaupum Skeifunni, Víði Skeifunni og Iceland Engihjalla. 

Í könnuninni var skráð niður hilluverð vöru, eða það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um inni í búðinni að hann eigi að greiða fyrir vöruna. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð.

Aðeins er um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert