Þingsetning á þriðjudag

Frá þingsetningu í fyrra.
Frá þingsetningu í fyrra. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Setning Alþingis fer fram á þriðjudag en Þingsetningarathöfnin hefst klukkan 13.30 12. september með guðsþjónustu í Dómkirkjunni.

Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Séra Bolli Pétur Bollason, sóknarprestur í Laufásprestakalli, prédikar og séra Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, Agnesi M. Sigurðardóttur. Organisti Dómkirkjunnar, Kári Þormar, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur Alþingi, 147. löggjafarþing, og að því loknu flytur forseti Alþingis, Unnur Brá Konráðsdóttir ávarp. Strengjakvartett leikur tónlist við þingsetningarathöfnina. Strengjakvartettinn skipa Auður Hafsteinsdóttir og Gróa Margrét Valdimarsdóttir fiðlur, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóla og Bryndís Halla Gylfadóttir selló.

Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 16.00. Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið verður hlutað um sæti þingmanna. Fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2018 verður þá útbýtt.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða miðvikudagskvöldið 13. september kl. 19.30.

Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2018 fimmtudaginn 14. september kl. 10.30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert