Tveimur sleppt úr haldi á Akureyri

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Karlmanni og konu hefur verið sleppt úr haldi lögreglu í tengslum við frels­is­svipt­ingu og lík­ams­meiðing­ar aðfaranótt þriðju­dags á Ak­ur­eyri sem leiddi til þess að karl­maður á fimm­tugs­aldri var lagður inn á sjúkra­húsið á Ak­ur­eyri.

Þetta staðfestir lög­regl­an á Norður­landi eystra en ekki var hægt að gefa meira upp um atburðarás eða ásetning að svo stöddu. 

Af sjö sem voru handteknir vegna málsins hefur þremur verið sleppt en fjórir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald, þrír karlmenn og ein kona. Hafa þau öll komið áður við sögu lögreglu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert