Karl nýr framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar

Karl Garðarsson hefur tekið við sem framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar.
Karl Garðarsson hefur tekið við sem framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karl Garðarsson, fyrrverandi ritstjóri og þingmaður, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar, sem í síðustu viku keypti DV, DV.is, Eyjuna, Pressuna, Bleikt, Birtu, Doktor.is, 433.is og sjónvarpsstöðina ÍNN.

Í tilkynningu kemur fram að Karl muni bera ábyrgð á daglegum rekstri allra miðla Frjálsrar fjölmiðlunar, en stefnt er að því að efla starfsemi félagsins til muna á næstu misserum.

Karl hefur tæplega aldarfjórðungs starfsreynslu í íslenskum fjölmiðlum. Þannig var hann einn af fyrstu fréttamönnum Bylgjunnar og síðar fréttamaður og fréttastjóri Stöðvar 2 um árabil. Hann var síðan framkvæmdastjóri rekstrarsvið Norðurljósa.

Þá var Karl einn stofnenda, framkvæmdastjóri og ritstjóri Blaðsins/24 stunda, sem síðar var selt til Árvakurs hf. Hann var útgáfustjóri prentmiðla Árvakurs um tíma. Karl var alþingismaður árin 2013-2016 og formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins á sama tíma.

Karl er með M.L gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.A gráðu í fjölmiðlafræði frá Minnesota háskóla. Þá er hann með B.A gráðu í Almennri bókmenntafræði og ensku frá Háskóla Íslands, auk diplomagráðu í viðskipta og rekstrarfræði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert