Minni kindakjötsbirgðir en í fyrra

Kindakjötsbirgðir frá síðasta ári voru 1.063 tonn í byrjun þessa mánaðar en á sama tíma í fyrra voru birgðirnar 1.262 tonn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landssamtökum sauðfjárbænda. Fyrir vikið hafi birgir við upphaf sláturtíðar verið 16,6% minni í ár en í fyrra. Birgðirnar í ár muni ennfremur minnka um 500-600 tonn áður en nýtt kjöt komi að fullu á markað þar sem sala á innanlandsmarkaði sé um 560 tonn á mánuði að meðaltali.

Fyrir vikið verði umframbirgðir af kindakjöti frá sláturtíðinni haustið 2016 þar af leiðandi um 500 tonn þegar upp verður staðið eða rétt tæplega eins mánaðar sala. Það geri um 5% af heildarframleiðslunni sem sé um 10 þúsund tonn. Markaðsstarf hafi skilað því að sala innanlands hafi aukist um 9,6% fyrstu átta mánuði þessa árs eða um 369 tonn samanborið við 5,2% aukingu fyrstu átta mánuði síðasta árs eða sem numið hafi 331 tonni.

Þetta hafi gerst á sama tíma og íslensk sauðfjárrækt hafi tekist á við ýmsa erfiðleika á erlendum mörkuðum eins og lokun Noregsmarkaðar, afleiðingar Úkraínudeilunnar, tæknilega lokum Rússlandsmarkaðar, fall breska pundsins vegna útgöngu Breta úr Evrópusambandsins og hátt gengi íslensku krónunnar. Áætlað sé að markaðir fyrir 1.500 til 2.000 tonn af kjöti hafi af þessum sökum og öðrum lokast eða laskast verulega.

„Samanlögð aukning á sölu innanlands er því um 700 tonn frá ársbyrjun 2016. Helstu ástæður þessa er markaðssetning gagnvart erlendum ferðamönnum með samstarfi við um 100 veitingastaði og öflugri herferð á samfélagsmiðlum.“ Sérstakt markaðsátak síðasta vetur með stuðningi Alþingis hafi skilað sölu upp á um 850 tonn. Þá hafi samstarfsverkefni í Japan skilað sér í 170 tonna sölu og útlit sé fyrir metár í sölu til Bandaríkjanna.

Samanlagt nemi þetta um 1.720 tonnum. Með samstilltum aðgerðum hafi tekist að forða því að verra ástand skapaðist. „Þrátt fyrir góðan árangur af markaðsstarfi og sérstökum aðgerðum sem gripið var til vegna erfiðra utanaðkomandi aðstæðna þarf enn að gera betur. Breska pundið er enn lágt, Rússlands- og Noregsmarkaðir enn lokaðir og gengi krónunnar enn hátt. Því er nauðsynlegt að halda áfram því árangursríka starfi sem unnið hefur verið á undanförnum misserum í samvinnu bænda, afurðastöðva, stjórnvalda og Icelandic lamb.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert