Birgitta kjörin þingflokksformaður

Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata.
Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata. mbl.is/Golli

Þingflokkur Pírata kaus sér nýja stjórn á þingflokksfundi í gær. Birgitta Jónsdóttir var kjörin þingflokksformaður, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir varaformaður þingflokksins og Jón Þór Ólafsson ritari hans. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Stjórnarkjörið er hluti af endurskipulagningu innan þingflokksins sem hefur staðið yfir í sumar en verkaskipting og valddreifing er nú jafnari en áður meðal stjórnarliða þingflokks. Þessi verkaskipan er aðeins einn angi af vinnu þingflokks við að skerpa á leiðum til að hrinda í framkvæmd helstu stefnumálum Pírata,“ segir ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert