Keyrt yfir fót á þrettán ára dreng

Frá Reykjanesbæ.
Frá Reykjanesbæ. mbl.is/Sigurður Bogi

Þrettán ára piltur gekk í veg fyrir strætisvagn í reykjanesbæ í gær og varð fótur hans undir hjóli vagnsins. Vagninn var að nema staðar þegar atvikið átti sér stað. Talsverðir áverkar voru á fæti piltsins og var hann fluttur með sjúkrabifreið undir læknis hendur til aðhlynningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert