Stefnuræða forsætisráðherra í kvöld

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. mbl.is/Eggert

Stefnuræða Bjarna Benediktssonar for­sæt­is­ráðherra og umræður um hana fara fram á Alþingi í kvöld. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur forsætirsáðherra 18 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 10 mínútur í fyrstu umferð. Í annarri og þriðju umferð hafa þingflokkarnir 5 mínútur hver.

Röð flokkanna í öllum umferðum er þessi: Sjálf­stæðis­flokk­ur, Vinstri hreyf­ing­in  grænt fram­boð, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn, Björt framtíð og Samfylkingin.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í fyrstu umferð, Sigríður Á. Andersen dómsmála­ráðherra í annarri umferð og Páll Magnússon, 1. þingmaður Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir, 2. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Steingrímur J. Sigfússon, 3. þingmaður Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Kolbeinn Óttarsson Proppé, 6. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fyrir Pírata tala Birgitta Jónsdóttir, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Eva Pandora Baldursdóttir, 5. þingmaður Norðvesturkjördæmis, í annarri umferð og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 10. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í þriðju.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigurður Ingi Jóhannsson, 2. þingmaður Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Lilja Alfreðsdóttir, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Silja Dögg Gunnarsdóttir, 7. þingmaður Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrstu umferð Benedikt Jóhannesson, fjár­mála- og efna­hags­ráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í annarri og í þriðju umferð Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.

Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Óttarr Proppé heilbrigðis­ráðherra, í annarri Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auð­linda­ráðherra, og í þriðju umferð Theodóra S. Þorsteinsdóttir, 12. þingmaður Suðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Logi Einarsson, 9. þingmaður Norðausturkjördæmis, í annarri Oddný G. Harðardóttir, 10. þingmaður Suðurkjördæmis, og Guðjón S. Brjánsson, 8. þingmaður Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert