United hefur flug hingað í vor

AFP

Í vor munu tvö bandarísk flugfélög bjóða upp á ferðir til Íslands þegar United Airlines hefur flug hingað frá Newark-flugvelli sem er skammt frá New York. Nú þegar býður flugfélagið Delta Air Lines ferðir héðan til JFK-flugvallar. Þetta kemur fram á vefnum turisti.is.

Flugfélögin verða því alls fjögur sem bjóða upp á ferðir milli Bandaríkjanna og Íslands en íslenska flugfélagið WOW air flýgur til Newark og þotur Icelandair fljúga til beggja þessara flugvalla. 

United mun fljúga hingað daglega. Jómfrúarferðin frá Keflavíkurflugvelli er á dagskrá í lok maí og er ætlunin er að starfrækja flugleiðina fram í byrjun október. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert