„Gamla dæmisagan um syndir feðranna“

Páll Magnússon segir að upplýsa hefði átt um málið í …
Páll Magnússon segir að upplýsa hefði átt um málið í júlí. mbl.is/Hanna

„Mér finnst að það hefði átt að meðhöndla þetta mál öðruvísi í júlí,“ sagði Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í Silfrinu á RÚV í morgun. Hann sagði að upplýsa hefði átt um það, strax þegar ljóst var að Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra, hefði skrifað undir umsagnarbréf fyrir Hjalta Sigurjón Hauksson, dæmdan barnaníðing.

„Það er mín skoðun að þegar það verður ljóst í júlí að faðir forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins hafi skrifað undir þetta umsagnarbréf, þá er ég þeirrar skoðunar að það hefði átt að segja frá því strax og ef menn teldu einhverja lagalega skavanka á því þá, þá átti að reyna að fá Benedikt Sveinsson til að gera þetta bara að eigin frumkvæði. Þetta hefði verið betur séð.“

Páll sagði jafnframt að viðbrögð Sjálfstæðisflokksins hefðu virkað þannig út á við að verið væri að „svara miklum harmi með lagastagli og formlegheitum.“ Þetta yrði að vera lexía fyrir flokkinn í því hvernig ætti að nálgast svona mál.

„Þetta segi ég í fullri auðmýkt. Við hefðum getað haldið betur á þessu. Því að sannarlega er það ekki svoleiðis að að það sé meiri biðlund, meiri samúð hjá fólki í Sjálfstæðisflokknum með barnaníðingum eða minni samúð með fórnarlömbum þeirra en hjá öðru almennilegu fólki. En fyrir marga virkaði þetta þannig að við værum að svara þessu með lagastagli.

Páll sagðist þó hafa skilning á því að Bjarni hafi ekki viljað meðhöndla mál Hjalta á annan hátt en mál Roberts Downey, sem var þegar komið í ferli. Hann segir vel hægt að rökstyðja það sjónarmið en hann sé hins vegar ekki sammála því.

Aðspurður hvort þetta mál hafi ekki veikt Bjarna, svaraði Páll: „Það er smekksatriði. Þetta er óþægilegt mál fyrir hann. Þetta er gamla dæmisagan um syndir feðranna.“ Hann sagði Bjarna hins vegar ekki hafa gert neitt af sér og hann hefði sagt að hann gæti aldrei varið þessa gjörð föður síns að skrifa undir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert