Kattavinafélagið lýsir hryggð yfir að enn og aftur hafi dýraníðingsmál komið upp í Hveragerði. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að það hafi áður skorað á lögreglustjóra Suðurlands að taka á þessum málum, auk þess sem það hafi sent Mast erindi vegna málsins.
„Enn og aftur fordæmir Kattavinafélag Íslands illa meðferð á köttum og skorar á þá aðila sem lögsögu hafa í slíkum málum að sýna að þeim standi ekki á sama og gera allt sem mögulegt er til að finna gerendur,“ segir í yfirlýsingu frá Kattavinafélaginu.