Tvö tilfelli af inflúensu greindust hjá erlendum ferðamönnum í byrjun þessa mánaðar. Annað var af völdum inflúensuveiru A(H3) en hitt af völdum inflúensuveiru B, samkvæmt upplýsingum frá sýkingavarnadeild og sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Þetta kemur fram á vef embætti landlæknis.
Í vikunni sem leið greindust tvö tilfelli af inflúensu A(H3) hjá tveimur sjúklingum sem lágu saman í herbergi á Landspítala. Nú um helgina greindust tveir einstaklingar til viðbótar með inflúensu A(H3), annar þeirra var barn sem lagðist inn á Landspítala.
„Enn er of snemmt að fullyrða að inflúensufaraldur sé hafinn. Mikilvægt er að fylgjast með fjölda einstaklinga sem greinast með inflúensulík einkenni. Enn sem komið er hefur ekki borið á aukningu slíkra tilfella í heilsugæslunni.“ Þetta kemur einnig fram á vef embættis landlæknis.
Nú þegar eru hafnar bólusetningar á sjúklingum og starfsmönnum Landspítala.
Heilsugæslan mun á næstunni auglýsa nánar um fyrirkomulag bólusetningarinnar.