Lögreglumenn frá sérsveit ríkislögreglustjóra vísuðu fyrr í dag manni frá alþingishúsinu sem hafði látið ófriðlega fyrir utan húsið.
Þetta segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, og bætir við að sérsveitarmennirnir hafi þarna verið að sinna almennum lögreglustörfum.
Formenn stjórnmálaflokkanna á þinginu sátu á sama tíma á fundi með Unni Brá Konráðsdóttur, forseta Alþingis, í alþingishúsinu til að ræða næstu skref í kjölfar stjórnarslitanna.