Útkall þegar eldamennskan klikkaði

mbl.is/Hjörtur

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út að húsi við Bárugötu í Reykjavík skömmu eftir klukkan sjö í kvöld, en mikill reykur barst frá íbúð í húsinu.

Grunur um eld reyndist þó ekki á rökum reistur í þetta sinn því þegar slökkvilið kom á staðinn kom í ljós að reykinn lagði frá eldamennsku sem hafði farið illilega úrskeiðis.

Slökkviliðsmenn reykræstu þó húsið áður en þeir héldu aftur upp í Skógarhlíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert