Lögreglan var við umferðareftirlit seint í gærkvöldi þegar hún veitti bifreið athygli sem oftar en ekki hefur verið ekið af mönnum sem eru undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Ákveðið var að snúa við og ræða við ökumanninn.
Ökumaðurinn sinnti hins vegar ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og endaði eftirförin í Breiðholti þar sem ökumaðurinn stökk út úr bifreiðinni og komst undan á hlaupum.
Samkvæmt dagbók lögreglu er vitað hver ók bifreiðinni og er hans leitað. Farþegi bifreiðarinnar var aftur á móti handtekinn og er vistaður í fangageymslu. Hann verður yfirheyrður síðar í dag vegna málsins.
Um miðnætti var tilkynnt um tvo menn brjóta rúðu í bifreið í Hafnarfirði en voru þeir horfnir af vettvangi þegar lögregla kom. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki vitað hverjir voru þar að verki.
Á fimmta tímanum í nótt stöðvaði lögregla ökumann sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var látinn laus að lokinni blóðtöku.