Brynjar hættir sem formaður

Frá fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Frá fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. mbl.is/Eggert

Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar, hefur verið kjörinn formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.

Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, er fyrsti varaformaður.

Þessu greindi Jón Steindór frá í upphafi opins fundar nefndarinnar með Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra þar sem rætt er um uppreist æru.

Meirihluti nefndarinnar komst að þessari niðurstöðu í upphafi fundarins. 

Jón Steindór tekur við formennskunni af Brynjari Níelssyni.

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson. mbl.is/Hanna
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert