70-80% þeirra sem taldir eru hafa verið smitaðir af lifrarbólgu C hér á landi hafa nú hafið meðferð gegn sjúkdóminum, eða um 600 einstaklingar.
Á fyrsta starfsári átaksins, sem hófst í ársbyrjun 2016, hafa um 95% þeirra sem klára meðferðina læknast að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Landspítalanum.
Í þessari viku, 18.-22. september, stendur spítalinn fyrir átaki í skimun fyrir lifrarbólgu C og verða dreifibréf send á öll heimili í landinu þar sem allir sem eru í aukinni áhættu að hafa smitast af lifrarbólgu C hvattir til að fara í greiningarpróf sem má fá á öllum heilsugæslustöðvum.
Auk þess verður í vikunni hægt að komast í greiningarpróf á vegum meðferðarátakins án þess að panta tíma. Prófað verður með hraðgreiningarprófum sem þarfnast eingöngu munnstroks eða blóðdropa og fást niðurstöður á 20-40 mínútum. Einnig getur þurft að fá blóðprufu til frekari staðfestingar.
Í ársbyrjun 2016 hófst opinbert átak gegn lifrarbólgu C hér á landi, sem stendur í þrjú ár. Landspítala var falin framkvæmd verkefnisins, en aðalsamstarfsaðili er sjúkrahúsið Vogur. Yfirumsjón með verkefninu hefur sóttvarnalæknir í umboði heilbrigðisráðherra.
Meðferðin stendur í 12 vikur og eru aukaverkanir sagðar vægar eða engar, sem sé mikil breyting frá þeirri meðferð sem áður var boðið upp á.
Lifrarbólga C er oft einkennalaus og talið er að allt að 20% sjúklinga séu ógreindir og viti ekki af smitinu.