Um 40 metrar í hviðum

Veðurstofa Íslands

Veðurstofan varar við hvössu og hviðóttu veðri á Suðausturlandi en í Öræfum gæti meðalvindur náð 25 m/s og í hviðum nærri 40 m/s. Talsverð rigning er austantil á landinu og á köflum mikil rigning á Suðausturlandi og Austfjörðum fram yfir hádegi.

Varað er við mikilli úrkomu á Suðausturlandi, syðst á Austfjörðum og Ströndum fram yfir hádegi. Því má búast við vatnavöxtum í ám og lækjum á svæðinu. Búist er við stormi (meira en 20 m/s) á Suðausturlandi og miðhálendinu.

Sennilega fellur ekki dagsmet í dag

„Rigna mun um nær allt land í dag og sums staðar verður um úrhellisregn að ræða. Er að sjá að á Suðausturlandi og Austfjörðum muni úrkomumagnið ná 40 til 60 millimetrum nokkuð víða og mun megnið af þessu vatni falla til jarðar fyrir hádegi. Einnig mun hann rigna duglega á Ströndum í dag. 

Sé horft til fyrri ára og sömu dagsetningar, þá er mesta mælda úrkoma frá því 2008, en þá skiluðu 95.3 millimetrar sér í úrkomumælinn á Hólum í Dýrafirði. Sennilega fellur það dagsmet ekki í dag, en dagurinn mun þó alltaf teljast í blautara lagi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.

Veðurspáin næstu daga

Norðaustlæg átt, allt að 25 m/s á Suðausturlandi, annars víða 10-18. Rigning um nær allt land og talsverð eða mikil rigning á Suðausturlandi og Austfjörðum fram yfir hádegi. Snýst í sunnan og suðaustan 10-18 síðdegis og styttir upp norðan- og austanlands. Minnkandi vindur í nótt, austan 5-10 á morgun með vætu á köflum um landið sunnanvert, en tiltölulega björtu veðri nyrðra. Hiti 6 til 13 stig.

Á fimmtudag og föstudag:

Austlæg átt, 5-10 m/s. Víða bjartviðri norðan- og norðaustanlands, annars væta á köflum og hiti 7 til 13 stig. 

Á laugardag:

Útlit fyrir austan hvassviðri eða storm með rigningu víða um land, en úrhellisrigningu á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast N-lands. 

Á sunnudag:

Stíf suðlæg átt og rigning með köflum, en lengst af bjart veður norðanlands. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast fyrir norðan.

Á mánudag og þriðjudag:

Hvöss austlæg átt, á köflum talsverð eða mikil rigning sunnan- og vestanlands, en úrkomulítið fyrir norðan. Fremur milt í veðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert