Leggur fram frumvarp um lögleiðingu kannabisefna

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar.
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar. mbl.is/Eggert

Pawel Bartozek, þingmaður Viðreisnar, hefur lagt fram frumvarp um lögleiðingu kannabisefna, en hann greinir frá því á heimasíðu sinni. Frumvarpið felur í sér að reglur verði settar um framleiðslu, sölu og meðferð á kannabisefnum og neyslan leyfð.

Pawel er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins en meðflutningsmenn þess eru Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, þingmaður Viðreisnar ásamt Gunnari Hrafni Jónssyni og Jóni Þóri Ólafssyni, þingmönnum Pírata. Pawel segir frumvarpið byggt á handbókinni „How to Regulate Cannabis: A Practical Guide“ á vegum Transform hugveitunnar.

Meginpuntkar frumvarpsins eru:

  • Framleiðsla, sala og neysla leyfð.
  • Aldursmörk verða 20 ár.
  • Smásala heimil í sérstökum verslunum.
  • Veitingasala heimil í sérstökum kannabisveitingastöðum, sem t.d. mega ekki selja áfengi
  • Efnið selt í gráum umbúðum með einfaldri áletrun þar sem kemur fram nafn framleiðanda og vöruheiti og tegund vöru, nánari innihaldslýsing og viðvörun um skaðsemi
  • Algert auglýsingabann.
  • Kannabisgjald, áþekkt áfengisgjaldi. Upphæðin verður 2000kr. á hvert  gramm af virka efninu THC. (Ef THC styrkleikinn er 15% þýðir það 300 kr. gjald á gramm).

Pawel segir á síðu sinni að í ljósi liðinna atburða sé líklegt að sú ásökun komi fram að um einhvers konar upphlaup sé að ræða, eða tilraun til að dreifa athygli frá öðrum málum. Hann segir frumvarpið hins vegar hafa verið í vinnslu frá því í desember síðastliðnum. Beðið hafi verið með framlagningu þess í vor og það unnið yfir sumartímann í samtarfi við fólk úr ungliðahreyfingu Viðreisnar.

„Það stóð því alltaf til að leggja málið fram í þessari viku, að lokinni fyrstu umræðu um fjárlög. Þingflokkur Viðreisnar féllst á að veita því brautargengi svo það kæmist á dagskrá,“ segir Pawel.

„Ef ekkert hefði gerst hefði það því verið rætt í þingsal á þessu hausti og farið til umsagnar. Það gekk því miður ekki eftir, út af öðrum, þekktum ástæðum. En ég vona þó að frumvarpið brjóti ísinn, hefji umræðuna og verði til þess að við munum einhvern daginn hætta að refsa fólki fyrir að neyta þessara tilteknu efna.“

Pawel segir afglæpavæðingu án reglusetningar vera framfaraskref. „En ef framleiðsla og sala verða áfram ólögleg þá missum við tækifæri til að gera einmitt það sem máli skiptir: hafa eftirlit með framleiðslu, stýra aðgengi, vernda börn og ungmenni og skattleggja neysluna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert