Meðvitundarlaus eftir árekstur

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Árekstur varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Álfheima á sjöunda tímanum í kvöld  þegar tveir bílar skullu saman.

Slökkviliðinu barst tilkynnt um einn meðvitundarlausan mann eftir slysið, en hann var kominn til meðvitundar áður en sjúkrabíll kom á staðinn og segir slökkviliðsmaður á vakt því hafa farið betur en áhorfðist. 

Draga þurfti annan bílinn af slysstað með dráttarbíl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert