Hættulegt að losa skrúfur á hjólum

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á Suðurnesjum segir að allt bendi til þess að framhjól hafi verið losað áður en reiðhjólaslys varð á dögunum á Suðurnesjum, þegar framhjól fór undan reiðhjóli átta ára drengs með þeim afleiðningum hann slasaðist í andliti og braut framtönn.

Lögreglan vill því koma þeirri ábendingu til foreldra barna að ræða við börn sín um alvarleika og hugsanlegar mjög alvarlegar afleiðingar þess geri börn sér það að leik að losa skrúfgang á framhjóli reiðhjóla barna.

Þannig atvik hafi komið upp á Suðurnesjum og eins á höfuðborgarsvæðinu undanfarið, segir í færslu sem lögreglan birtir á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert