Hjólreiðar verði raunhæfur samgöngukostur

Vegagerðina hefur fjármagnað nýja hjólreiðastíga á höfuðborgarsvæðinu og að meðaltali …
Vegagerðina hefur fjármagnað nýja hjólreiðastíga á höfuðborgarsvæðinu og að meðaltali hefur um 250 milljónum króna verið varið til stígagerðar. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Hjólreiðar eiga að vera raunhæfur kostur enda draga þær úr umhverfisáhrifum, lækka samgöngukostnað og minnka orkuþörf. Þetta sagði Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í ávarpi sínu á ráðstefnunni Hjólum til framtíðar, sem haldin var í tilefni Samgönguviku.

Sagði ráðherra Vegagerðina hafa fjármagnað nýja hjólreiðastíga á höfuðborgarsvæðinu og að meðaltali hefði kringum 250 milljónum króna verið varið til stígagerðar. Að leiðarljósi við þær framkvæmdir sé að hjólreiðar verði greiður og öruggur ferðamáti með gerð stofnstíga, sem aðskilji hjólreiðar frá annarri umferð meðfram þjóðvegum.

Sagði Jón íslenska ríkið hafa staðið undir helmingi kostnaðar á móti viðkomandi sveitarfélagi. Fram á þetta ár hafi fjármagni einkum verið varið til stígagerðar á höfuðborgarsvæðinu, en sveitarfélög á landsbyggðinni séu þó í vaxandi mæli farin að standa að gerð hjólastíga. Þannig sé nú unnið að gerð hjólastígar milli Akureyrar og þéttbýlisins í Hrafnagili, í Snæfellsbæ og í Árborg. Þá verði á  næsta ári stutt við gerð hjólastíga í Mývatnssveit og í Fellabæ.

Á ráðstefnunni  voru flutt erindi um hjóla- og göngustíga á höfuðborgarsvæðinu og víðar, um hjólahraðbraut og reynslu hjólreiðamanna af hjólastígum.

Sveitarfélög í Evrópu hafa frá árinu 2002 hvatt til árlegs átaks sveitarfélaga um að ýta undir sjálfbærar samgöngur og er evrópsk samgönguvika haldin ár hvert í þessum tilgangi. Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft. Á dagskrá vikunnar að þessu sinni voru fundir og ráðstefnur um hjólreiðar, víða var boðið upp á hjólaferðir og átakinu lauk í dag með bíllausum degi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert