Með frumvarp fyrir framkvæmdum í Teigsskógi

Vegagerð á sunnanverðum Vestfjörðum. Sjö þingmenn Norðvesturkjördæmis ætla á næsta …
Vegagerð á sunnanverðum Vestfjörðum. Sjö þingmenn Norðvesturkjördæmis ætla á næsta þingfundi að leggja fram frumvarp þess efnis að Vegagerðinni verði veitt leyfi til framkvæmda á leið Þ-H á Vestfjarðarvegi, sem liggur um Teigsskóg í vestanverðum Þorskafirði. mbl.is/Árni Sæberg

Sjö þingmenn Norðvesturkjördæmis ætla á næsta þingfundi að leggja fram frumvarp þess efnis að Vegagerðinni verði veitt leyfi til framkvæmda á leið Þ-H á Vestfjarðavegi, sem liggur um Teigsskóg í vestanverðum Þorskafirði.

Í fréttatilkynningu frá þingmönnunum segir að samstaða sé um málið meðal allra þingmanna kjördæmisins. Þeir vilji að málið komist úr þeirri kyrrstöðu sem það hefur verið í og að það fái framgang í samræmi við matsskýrslu Vegagerðarinnar og álit Skipulagsstofnunar.

„Ekki þarf að fjölyrða um brýna nauðsyn þess að ráðast í vegabætur á svæðinu sem um ræðir, enda ber gamli malarvegurinn um Gufudalssveit ekki lengur þá umferð sem um hann fer og skapar alvarlega hættu,“ segir í tilkynningunni. „Óásættanleg töf hafi orðið á málinu nú þegar, enda hafi það  velkst í kerfinu í tæp 15 ár.

„Flutningsmenn telja ekki ásættanlegt að íbúar svæðisins þurfi lengur að líða fyrir þær miklu ógöngur sem leyfi til framkvæmda hefur þurft að feta. Það hefur varla verið vilji löggjafans að hægt sé að halda jafn brýnni samgöngubót í gíslingu flækjustigs stjórnsýslunnar í jafn langan tíma og raun ber vitni.“

 Tafir á uppbyggingu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit séu án fordæmis og því geti veiting framkvæmdaleyfis með sérstökum lögum nú heldur ekki verið fordæmisgefandi.

„Tímabært er að umræða um rétt íbúa gegn svifaseinni stjórnsýslu eigi sér stað.“

Staða málsins nú sé sú að öll efnisleg atriði liggi fyrir í nýju mati á umhverfisáhrifum og í áliti Skipulagsstofnunar. Búið sé að taka tillit til margvíslegra athugasemda, draga verulega úr neikvæðum áhrifum framkvæmdarinnar á umhverfið og þá heyri eldri ágreiningsefni um stjórnsýslumeðferðina enn fremur sögunni til. Enn á ný séu þó tafir á framkvæmdum og að þessu sinni snúi tafirnar að málsmeðferð er varðar veitingu framkvæmdaleyfis.

„Flutningsmenn frumvarpsins telja nauðsynlegt að löggjafinn grípi nú um tauma í þeim tilgangi að koma í veg fyrir  frekari tafir og flýti því eins og kostur er að framkvæmdir geti hafist. Sveitarfélög á Vestfjörðum hafa að undanförnu sett fram sambærileg sjónarmið.“

Áréttað er í frumvarpinu að þrátt fyrir veitingu framkvæmdaleyfisins sé það viðkomandi sveitarfélag sem hafi eftirlit með framkvæmdum samkvæmt ákvæðum skipulagslaga. Þá verði Vegagerðin, eftir sem áður, að ljúka ákveðnum verkefnum áður en ráðist verði í framkvæmdirnar og sé þar um að ræða rannsóknir Hafrannsóknastofnunar á botnseti á leið Þ-H í Þorskafirði í samræmi við álit Skipulagsstofnunar og breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps vegna nýrra efnistökustaða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert