Fann mikið magn peninga

Heiðvirður borgari kom á lögreglustöðina í Reykjanesbæ í gærkvöldi með peningaveski sem hann hafði fundið. Í veskinu er mikið magn reiðufjár sem lögreglan vill koma í réttar hendur.

Á Facebook-síðu lögreglunnar kemur fram, að að sjálfsögðu þurfi eigandi að sanna eignarhald sitt á þessum peningum með því að lýsa veskinu og segja þeim hversu mikið af peningum er í því.

Þegar mbl.is hafði samband við lögreglu í morgunsárið var eigandinn enn ófundinn.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert