Ofurhetjur á Húsavík

Babita Sharma, fréttaþulur BBC World.
Babita Sharma, fréttaþulur BBC World. Aðsent

Landkönnunarverðlaun Leifs Eiríkssonar, Leif Erikson Exploration Awards, verða veitt í þriðja sinn í dag.

Landkönnunarhátíð á Húsavík hefur staðið síðustu 3 daga og verður hápunktur hátíðarinnar í dag þegar Babita Sharma, fréttaþulur BBC World News mun kynna verðlaunin í dag, en síðustu tvö ár hafa tveir forsetar Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Ólafur Ragnar Grímsson, veitt verðlaunin fyrir hönd Könnunarsafnsins sem stendur að hátíðinni, að því er fram kemur í tilkynningu.

Þátttakendur í hátíðinni í ár eru meðal annars Alex Bellini sem fyrr á þessu ári fór yfir Vatnajökul og hefur m.a. farið einn í 227 daga róður yfir Atlantshafið, og Edurne Pasaban sem er fyrst kvenna til að klífa öll 14 fjöll heims yfir 8 þúsund metrum.

Verðlaunin hafa áður m.a. verið veitt Harrison Schmitt tunglfara, inversrsku Malik systrunumm, siglingakonunni Jessicu Watson sem fór 16 ára umhverfis hnöttin, og áhöfn Haraldar Hárfagra. Hátíðinni lýkur á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert