Stjórnlaus af sveppaneyslu

Sveppir á víðavangi.
Sveppir á víðavangi. mbl.is/Ómar Óskarsson

Rétt eftir miðnætti þurfti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að flytja mann, sem var í mjög annarlegu ástandi sökum neyslu sveppa, á slysadeild Landspítalans.

Eftir stutta bið eftir aðstoð læknis varð sá dópaði mjög órólegur og réðst ekkert við hann. Því þurfti lögregla að yfirbuga manninn og flytja hann á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem hann er vistaður í fangaklefa. Einn lögreglumaður slasaðist í átökunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert