Ung kona sem var við störf á Íslandi í sumar átti veskið sem heiðarlegur borgari kom með á lögreglustöðina í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Alls voru 3.800 evrur, sem svarar til 490 þúsund króna, í reiðufé í veskinu.
Að sögn varðstjóra í lögreglunni var hún ákaflega fegin að frétta af peningunum hjá lögreglunni en hún hafði farið í gær til þess fá sumarlaununum skipt í evrur.