„Útmálaður mesti hrokagikkur landsins“

Brynjar Níelsson segir suma einfaldlega vilja þyrla upp moldviðri til …
Brynjar Níelsson segir suma einfaldlega vilja þyrla upp moldviðri til að koma höggi á Sjálfstæðisflokkinn. mbl.is/Árni Sæberg

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það mikinn misskilning að þeir sem hæst hafa látið í málum tengdum uppreist æru sé meira annt um brotaþola og aðstandendur þeirra en öðrum. Hann segir það einfaldlega mikilvægt hjá sumum að þyrla upp moldviðri til að koma pólitísku höggi á Sjálfstæðisflokkinn. Þetta kemur fram í færslu sem hann skrifaði á Facebook-síðu sína fyrr í dag.

Hann segir þetta sama fólk ekki hafa haft áhyggjur af framkvæmd ráðuneytisins á uppreist æru þegar það stjórnaði því sjálft. Brynjar vísar þar væntanlega til þeirra þingmanna sem eru í stjórnarandstöðu, og hafa gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn fyrir framgöngu í málinu. Sakað flokkinn um leyndarhyggju og tregðu til að veita brotaþolum og almenningi upplýsingar sem átti að vera hægt að gera opinberar.

„Nú um stundir er ég útmálaður mesti hrokagikkur landsins, einkum af fólki sem þekkir mig ekki eða skilur ekki muninn á hroka og kaldhæðni. Ég væli svo sem ekkert yfir þessari nafnbót því stundum þarf dass af hroka til að benda á það augljósa. En merkilegast er að hroki minn truflar aðallega mestu netsóða landsins.“

Brynjar segir fólk þó ekki vilja meina hrokinn sé það versta við hann, heldur frekar vanþekking hans á afleiðingum kynferðisbrota, skortur á samúð með brotaþolum og fullmikil samúð með brotamönnum. „Samt vill svo til að ég er sennilega eini þingmaðurinn sem hefur unnið fyrir og með brotaþolum og gerendum í alvarlegum brotum og þekki því hörmungarnar sem fylgja á alla kanta. Og þótt ég hafi barist fyrir réttindum sakaðra og dæmdra manna þýðir það ekki að ég sé að réttlæta gerðir þeirra eða sé sama um þá sem eiga um sárt að binda vegna brotanna. Mér sýnist að í augnablikinu megi ekki ræða um réttindi dæmdra manna nema þeir hafi verið dæmdir í Guðmundar-og Geirfinnsmálinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert