Um klukkan hálffimm í nótt fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um heimilisofbeldi. Meintur gerandi var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Hann verður yfirheyrður síðar í dag.
Þá var tilkynnt um líkamsárás í miðbænum um klukkan fjögur í nótt, en þá hafði maður verið kýldur fyrir utan skemmtistað.