Rannsaka meint kynferðisbrot

Lögreglan rannsakar meint kynferðisbrot.
Lögreglan rannsakar meint kynferðisbrot.

Lögreglunni á Vestfjörðum barst kæra er varðar meint kynferðisbrot sem talið er hafa átt sér stað í heimahúsi þar sem gleðskapur fór fram um helgina. Einn var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins. Honum hefur verið sleppt lausum enda ekki talin ástæða til að halda honum lengur í þágu rannsóknarhagsmuna en málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörðum. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar. 

Lögreglan hafði afskipti af skipstjóra fiskibáts sem kom úr veiðiferð og til löndunar í höfn á norðanverðum Vestfjörðum á mánudaginn í síðustu viku. Þrír voru í áhöfn bátsins og reyndist lögskráningu ábótavant. Grunur vaknað  um að skipstjórinn væri undir áhrifum fíkniefna. Hann var handtekinn og sleppt lausum að viðeigandi sýnatöku lokinni og er málið til rannsóknar.

Á miðvikudaginn í síðustu viku varð eldur laus í vélarrúmi báts sem verið var að landa úr við Sundahöfn á Ísafirði. Skipverjum tókst að einangra eldinn og kom slökkvilið fljótt á vettvang og réði niðurlögum eldsins. Tildrögin eru til rannsóknar hjá lögreglunni.

Alls voru 13 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í liðinni viku. Fjórar tilkynningar bárust lögreglunni um að ekið hefði verið á lambfé í umdæminu. Rétt er að minna ökumenn á að víða í umdæminu er verið að smala fé af fjalli og því rétt að vera á varðbergi, enn frekar en áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert