Röst tók niðri við Landeyjahöfn

Röst við bryggju í Eyjum í dag.
Röst við bryggju í Eyjum í dag. Ljósmynd/Óskar Friðriksson

Farþegaferjan Röst, sem leysir Herjólf af í siglingum milli lands og Eyja, tók niðri í útsiglingu frá Landeyjahöfn um miðjan daginn í dag. Kafari var kallaður til til að meta hvort eitthvert tjón hefði orðið.

„Kjölurinn á skipinu nuddaðist aðeins við en þetta var minni háttar snerting. Kafari kom og mat aðstæður,“ segir Gunnlaugur Grettisson, forstöðumaður ferjusiglinga hjá Eimskip.

„Það er aldrei gott þegar skip snertir botninn en blessunarlega var þetta lítið,“ bætir Gunnlaugur við. Kafarinn hefur lokið störfum en að sögn hans virðist allt í fínu standi á skipinu.

Gunnlaugur gerir ekki ráð fyrir því að farnar verði fleiri ferðir milli Landeyjahafnar og Eyja í dag. Veður sé að versna en heldur hefur bætt í vindinn og ölduhæð er talsverð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert