Réttindalaus með hnúajárn og amfetamín

mbl.is/Ófeigur

Ökumaður, sem lögreglan á Suðurnesjum handtók í gærkvöld vegna gruns um fíkniefnaakstur, reyndist hafa í fórum sínum hnúajárn og poka sem innihélt meint amfetamín. Auk þess hafði hann aldrei öðlast ökuréttindi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Þar segir jafnframt, að farþegi sem var með honum í bílnum hafi verið með talsvert magn af kannabisefnum og tvær e-töflur í farangri sínum. Hann var einnig færður á lögreglustöð.

Áður höfðu tveir ökumenn verið handteknir vegna gruns um ölvunarakstur. Annar þeirra ók út af þar sem hann var á leið um Reykjanesbraut og hinn hafði verið sviptur ökuréttindum tvisvar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert