Rimantas fannst látinn

Rimantas Rimkus.
Rimantas Rimkus.

Rimantas Rimkus, sem lýst var eftir í júní, fannst látinn á höfuðborgarsvæðinu í lok síðasta mánaðar. Rimantas, sem var 38 ára og frá Litháen, lætur eftir sig tvö börn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þar kemur fram að ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill þakka öllum þeim sem veittu aðstoð við leitina að Rimantas.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert