Afsláttur á fasteignaskatti ellilífeyris- og örorkuþega í Hafnarfirði mun aukast umtalsvert á komandi ári, samkvæmt tillögu sem samþykkt var einróma í bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar á fundi síðastliðinn miðvikudag.
Breytingarnar munu taka gildi 1. janúar næstkomandi. Tekjuviðmið verða hækkuð og fleiri njóta afsláttar, samkvæmt fréttatilkynningu frá bænum.
,,Með þessum aðgerðum er verið að gera fleiri eldri borgurum í Hafnarfirði kleift að búa lengur í eigin húsnæði en ella og tel ég að sveitarfélagið sé að sýna ákveðna forystu í þeim efnum“, er haft eftir Rósu Guðbjartsdóttur, formanns bæjarráðs Hafnarfjarðar, í tilkynningunni, sem um er fjallað í Morgunblaðinu í dag.