Brynhildur framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna

Brynhildur Pétursdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna.
Brynhildur Pétursdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Brynhildur Pétursdóttir, fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna. Frá þessu er greint á vef samstakanna.

Mikill styr var um Ólaf Arnarson, sem var formaður samtakanna, en hann sagði af sér embætti í sumar og greindu Neytendasamtökin þá frá því að gert væri ráð fyrir samtökin yrðu án formanns þar til næsta haust.

Brynhildur starfað fyrir Neytendasamtökin um árabil og var m.a. ritstjóri Neytendablaðsins þar til hún settist á þing fyrir Bjarta framtíð á kjörtímabiliu 2013-2016.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert