Nýja brúin opnuð

Bráðabirgðabrúin, eins og hún leit út í hádeginu.
Bráðabirgðabrúin, eins og hún leit út í hádeginu. Ljósmynd/Ingunn Loftsdóttir

Bráðabirgðabrú yfir Steinavötn verður opnuð í hádeginu, eða eins og Ingunn Loftsdóttir, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni, sagði í samtali við mbl.is: „Brúin verður opnuð hvað úr hverju.“

Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa unnið hörðum höndum undanfarna daga að smíðinni. Gert er ráð fyrir því að í það minnsta tvö ár séu í að varanleg brú verði opnuð yfir Steinavötn.

„Bráðabirgðabrú­in er 104 m löng brú, reist á tréstaur­um sem rekn­ir eru niður í sand­inn, smíðuð eru svokölluð ok sem bera stál­bita, eða I-bita og ofan á þá er síðan lagt timb­urgólf. Á brúnni er auðvitað líka vegrið og ljós til að vara við ein­breiðri brú,“ sagði í tilkynningu Vegagerðarinnar.

Uppfært kl. 12.32 : Klukkan tólf á hádegi var umferð hleypt á nýja bráðabirgðabrú yfir Steinavötn og er þá Hringvegurinn allur opinn á ný.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert