Íslenska hönnunarfyrirtækið Tulipop setti í dag í loftið YouTube-rás sem inniheldur stuttar teiknimyndir byggðar á hinum litríka Tulipop ævintýraheimi og persónunum sem þar búa.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Teiknimyndirnar eru framleiddar í samstarfi við bandaríska fyrirtækið Wildbrain, sem er leiðandi í framleiðslu afþreyingarefnis fyrir vefmiðla. Wildbrain sér einnig um að stýra YouTube-rásinni á heimsvísu.
Handrit þáttanna skrifar handritshöfundurinn Tobi Wilson í samstarfi við Signýju Kolbeinsdóttur, yfirhönnuð Tulipop og skapara Tulipop heimsins. Tobi hefur skapað sér nafn í heimi teiknimynda, sem einn helsti handritshöfundur hinnar vinsælu þáttaraðar The Amazing World of Gumball, sem sýnd er á Cartoon Network.
Tónlistin í þáttunum er frumsamin af Herdísi Stefánsdóttur og James Newberry, og Ólafur Darri Ólafsson leikari ljær einni aðalpersónu þáttanna, Fred, rödd sína.
Fyrstu þrjár teiknimyndirnar eru nú þegar aðgengilegar á YouTube-rásinni, en fleiri þættir munu bætast við á næstu vikum.
„Þetta er stór dagur fyrir okkur í Tulipop og við erum alsæl með að geta nú leyft Tulipop-aðdáendum að kynnast skringilegum persónum ævintýraheimsins betur í gegnum teiknimyndir sem við vonum að muni gleðja krakka á öllum aldri,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Tulipop, í tilkynningunni.
RÚV hefur tryggt sér sýningarétt á þáttaröðinni og mun láta þýða þættina og talsetja á íslensku í samstarfi við Tulipop og sýna í sjónvarpi síðar á árinu.