Sinnum greiði móður Ellu Dísar bætur

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði að andlát Ellu Dísar yrði rakið því …
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði að andlát Ellu Dísar yrði rakið því rakið til þess að stjórnendur Sinnum ehf. hafi sýnt af sér stórfellt gáleysi með því að setja ófaglærðan starfsmann í aðstæður sem hann gat ekki ráðið við. Ófeigur Lýðsson

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gert þjónustufyrirtækinu Sinnum ehf. til að greiða Rögnu Erlendsdóttur þrjár milljónir króna í bætur, vegna andláts dóttur hennar Ellu Dísar. Ragna hafði stefnt fyrirtækinu og Reykjavíkurborg vegna stórfellds gáleysis sem hafi valdið því að Ella Dís Laurens lést árið 2014. 

Var það mat Héraðsdóms að andlát Ellu Dísar yrði rakið til stórfellds gáleysis stjórnenda Sinnum ehf., sem hefðu sett ófaglærðan starfsmann í aðstæður sem hann gat ekki ráðið við, en Ella Dís var með sjald­gæf­an sjúk­dóm og var háð önd­un­ar­vél. 

Héraðsdómur sýknaði hins vegar Reykjavíkurborg af kröfum Rögnu, sem hafði farið fram á að Sinnum efh. og Reykjavíkurborg yrði gert að greiða sér fimm milljónir króna í bætur óskipt.

Ella Dís hafði frá 15 mánaða aldri þjáðst af ólæknandi taugasjúkdómi, sem olli henni m.a. máttleysi, öndunarerfiðleikum, heyrnarskaða, næringarerfiðleikum o.fl. Móðir hennar fór með hana til Bretlands til læknisrannsóknar þegar hún hætti að geta andað af sjálfsdáðum í júní 2008 og síðar til læknis í Bandaríkjunum. Mæðgurnar voru búsettar hér á landi frá því síðla árs 2012.

Gerðu samning við Sinnum um skólagönguna

Barnaverndaryfirvöld höfðu áður haft afskipti af málefnum Ellu Dísar, sem var vistuð utan heimilis frá heimkomunni til Íslands. Dvaldi hún í fyrstu ýmist í Rjóðri , hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik og fötluð börn, eða á Barnaspítala hringsins. Eftir að hún hóf grunnskólagöngu í janúar 2013 var hún flutt á Móvað, heimili fyrir langveik og fötluð börn, í júlí 2013.

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar gerði samning við Sinnum vegna skólagöngu Ellu Dísar, en fyrirtæki gefur sig út fyrir að bjóða upp á fjölþætta velferðarþjónustu til einstaklinga. Á grundvelli samningsins sinnti fyrirtækið sértækum stuðningi við Ellu Dís í skólanum, en henni fylgdi m.a. þroskaþjálfi sem aðstoðaði hana í þar. Ella Dís var með sérstakan vinnustól í skólanum og útbúin var aðstaða inni af skólastofunni fyrir hana og hennar tæki, auk sjúkrarúms ef hún yrði of þreytt og þyrfti að hvíla sig. Hún var tengd við öndunarvél gegnum barkatúbu í hálsi og mettunarmæli sem sýndi súrefnismettun í blóði og hjartslátt.

Þroskaþjálfarinn sem að staðaldri fylgdi Ellu Dís í skólann forfallaðist þennan dag vegna veikinda og  var ófaglærður starfsmaður Sinnu ehf. fenginn til að fylgja henni í skólann. Sá þekkti Ellu Dís og hafði sinnt henni í afleysingum, en aldrei án aðstoðar.

Öndunartúpan ekki á sínum stað

Þegar starfsmaðurinn flutti Ellu Dís úr hjólastól hennar í vinnustólinn í skólanum féll súrefnismettun og hjartsláttur hækkað. Starfsmaðurinn reyndi þá án árangurs að nota sog- og hóstavél, auk þess að hringja í Neyðarlínuna eftir aðstoð. Sjúkraflutningamenn komu á staðinn sex mínútum síðar og var Ella Dís þá komin í öndunar- og hjartastopp.

Bráðatæknir greindi frá því fyrir dómi að hann hefði tekið eftir að  öndunartúban hefði ekki verið á sínum stað í hálsi Ellu Dísar sjúkraflutningamenn komu á staðinn.

Endurlífgunartilraunin bar árangur og var Ella Dís flutt á bráðamóttöku barna og þaðan á gjörgæsludeild. Ragna sagði Ellu Dís hafa orðið fyrir miklum heilaskaða við atvikið og hafi hún aldrei hafa sýnt eðlileg viðbrögð eftir það og þar til  hún lést  5. júní árið 2014. 

Í dómi héraðsdóms segir að að hafið  sé yfir vafa að heilsufarsástæðurnar sem leiddu til lífsloka Ellu Dísar hafi verið afleiðing af því að hún varð fyrir alvarlegum súrefnisskorti. Þá megi ráða af framburði vitna að ýmislegt varðandi umönnun Ellu Dísar hafi verið laust í reipum. Frásagnir vitna bendi til þess að ekki hafi verið skýrt kveðið á um hver þekking og reynsla starfsmanna þyrfti að vera, hver sæi um þjálfun þeirra og hver væri ábyrgur fyrir því að hún væri nægilega góð.

Andlát Ellu Dísar yrði rakið því rakið til þess að stjórnendur Sinnum ehf. hafi sýnt af sér stórfellt gáleysi með því að setja ófaglærðan starfsmann í aðstæður sem hann gat ekki ráðið við.

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert