1,8 milljarðar settir í leiguíbúðir

60 af þeim 112 leiguíbúðum Bjargs íbúðafélags sem nú hlutu …
60 af þeim 112 leiguíbúðum Bjargs íbúðafélags sem nú hlutu stofnframlög verða á lóð lengst til vinstri á myndinni.

Íbúðir fyrir námsmenn eru í meirihluta þeirra íbúða sem Íbúðalánasjóður setur fjármagn í samkvæmt nýrri úthlutun. Alls eru settir 1,8 milljarðar í verkefnið að þessu sinni.

Í fréttatilkynningu kemur fram að Íbúðalánasjóður hefur ákveðið hverjir hljóta 1.800 milljónir króna í stofnframlög frá sjóðnum til byggingar svokallaðra leiguheimila.

„Um er að ræða framlög ríkisins vegna byggingar og kaupa á um 370 hagkvæmum leiguíbúðum víða um land. Að þessu sinni eru íbúðir fyrir námsmenn í meirihluta og fengu byggingaraðilarnir að vita af úthlutuninni fyrir helgi. Stofnframlögin nema að minnsta kosti um 18% byggingakostnaðar og því mun þessi eina úthlutun upp á 1,8 milljarða hafa í för með sér byggingu leiguíbúða fyrir ríflega 10 milljarða króna,“ samkvæmt tilkynningu.

Íbúðalánasjóður.
Íbúðalánasjóður.

Þetta er þriðja úthlutun stofnframlaga frá því að Alþingi samþykkti að styrkja uppbyggingu leiguíbúða þar sem greidd er hagstæðari leiga en almenn býðst. Alls hafa nú verið veittir 4,6 milljarðar króna vegna byggingar og kaupa á um 900 íbúðum sem byggingarfélögin skuldbinda sig til að leigja út til tekjulágra og eignalítilla, námsmanna, aldraðra eða fólks með fötlun. Stefnt skal að því að leiguverðið fari ekki yfir 25% af heildartekjum þeirra.

Í úthlutuninni nú voru veitt stofnframlög til byggingar 244 námsmannaíbúða. Um er að ræða 100 íbúðir Byggingarfélags námsmanna við Stakkahlíð og 144 námsmannaíbúðir byggingarfélagsins Grunnstoðar við Nauthólsveg. Til samanburðar eru námsmannaíbúðir á landinu öllu nú um 2.400 talsins og því munu þessi tvö verkefni hafa í för með sér 10% fjölgun námsmannaíbúða á landsvísu.

Þá hlýtur Bjarg íbúðafélag jafnframt stofnframlög vegna byggingar 112 íbúða, meðal annars í Vogabyggð í Reykjavík, auk þess sem Leigubústaðir Árborgar, Dalvíkurbyggð og Norðurþing hljóta framlög, meðal annars vegna íbúða fyrir fólk með fötlun.

Íbúðalánasjóður mun halda áfram að úthluta stofnframlögum til byggingar og kaupa á leiguheimilum í samstarfi við sveitarfélög en sveitarfélög leggja almennt til um 12% byggingakostnaðar til móts við stofnframlög Íbúðalánasjóðs. Á árunum 2016-2022 er áætlað að úthlutað verði framlögum vegna samtals 3.200 íbúða og að heildarkostnaðurinn við uppbyggingu þessa nýja húsnæðiskerfis verði ríflega 80 milljarðar króna. 

Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs.
Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs.

Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir í fréttatilkynningunni að fram hafi komið að það vanti níu þúsund íbúðir inn á markaðinn en í fyrra fjölgaði þeim aðeins um 1.580.  „Við þurfum að bregðast við erfiðu ástandi á húsnæðismarkaði. Staðan er enn mjög slæm. Fólksfjölgun hefur verið hraðari sem eykur enn eftirspurn eftir húsnæði,“ segir Hermann. 

„Leiguheimilin eiga að gagnast þeim sem verðhækkanirnar bitna harðast á. Ríki og sveitarfélög leggja til eigið fé til þessara framkvæmda sem þýðir að við fáum 80 milljarða króna í uppbyggingu húsnæðis sem leigt verður út á sanngjörnu verði. Þetta mun að mínu mati gerbreyta húsnæðismarkaðnum fyrir þá hópa sem verst standa.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert