„Vissi ekki að það lægi svona mikið á“

Hreppsnefnd Ásahrepps var ekki búin að skila inn umsögn vegna …
Hreppsnefnd Ásahrepps var ekki búin að skila inn umsögn vegna stækkunar friðlands Þjórsárvera. mbl.is/Rax

Það kom Agli Sigurðssyni, oddvita Ásahrepps, á óvart þegar hann heyrði af því í morgun að umhverfis- og auðlindaráðherra væri búin að undirrita auglýsingu um friðlýsingu vegna stækkunar friðlands í Þjórsárverum. Hreppsnefndin hafði ekki skilað inn umsögn vegna fyrirhugaðrar stækkunar, og taldi sig hafa frest fram yfir hreppsnefndarfund, sem haldin verður næsta miðvikudag, til að skila inn umsögn. Að sögn Egils hefur hreppsnefnin ekki myndað sér skoðun á málinu.

Í tilkynningu frá umverfis- og auðlindaráðuneytinu vegna friðlýsingarinnar kemur fram að sveitarfélögum á svæðinu hafi verið veittur frestur til 3. október síðastliðins til að skila inn athugasemdum. „Við vorum búin að tilkynna að við yrðum með hreppsnefndarfund þann 11. október þar sem þetta yrði tekið fyrir. Ég vissi ekki að það lægi svona mikið á. Það kom mér á óvart að mönnum skyldi liggja svona mikið á núna. Ég hélt að það væri verið að bíða eftir umsögnum um þetta. Vika til og frá skiptir engu máli, þetta er að vera í umræðunni í fjölda ára,“ segir Egill í samtali við mbl.is.

Átta um­sagn­ir bárust ráðuneytinu vegna málsins. Frá Skeiða- og Gnúp­verja­hreppi, Blá­skóga­byggð, Hruna­manna­hreppi, Vini Þjórsár­vera, Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök­um Íslands, Nátt­úru­fræðistofn­un Íslands, Land­vernd og Fugla­vernd. 

Eng­inn þeirra sem veitti um­sögn um málið lagðist gegn friðlýs­ing­unni en ábend­ing­ar komu m.a. fram um fyr­ir­huguð mörk svæðis­ins, þ.e. að svæðið ætti að vera stærra, seg­ir í til­kynn­ingu frá um­hverf­is- og auðlindaráðuneyt­inu.

Egill segir að núverandi hreppsnefnd hafi enn ekki myndað sér skoðun á stækkun friðlandsins, en fyrri hreppsnefnd var hlynnt stækkun þess. Nefndin mun fara yfir málið á fundinum á miðvikdaginn og í kjölfarið senda ráðuneytinu athugasemdir, jafnvel þó það sé orðið of seint.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert