Jónas Reynir hlýtur bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

Jónas Reynir Gunnlaugsson hlaut í dag bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
Jónas Reynir Gunnlaugsson hlaut í dag bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Ljósmynd/Aðsend

Jónas Reynir Gunnarsson hlaut í dag bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2017 fyrir ljóðahandritið Stór olíuskip. Borgarstjóri veitti verðlaunin sem nema 700 þúsund krónum en fyrstu eintök af bókinni komu um leið úr prentun í útgáfu bókaforlagsins Partusar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 

Alls barst 51 óbirt ljóðahandrit undir dulnefni. Dómnefndina skipuðu Úlfhildur Dagsdóttir formaður, Þórarinn Eldjárn og Illugi Gunnarsson. Í niðurstöðu dómnefndar segir: ,,Stór olíuskip er sterkt og fallegt verk. Ljóðin eru stílhrein og myndmálið ferskt og grípandi. Heildarmyndin er fimlega smíðuð og kallar á endurlestur; stóru olíuskipin sigla inn og út um vitund lesandans og skilja eftir sig fínlegt kjölfar tilfinninga sem spanna allt frá depurð og eftirsjá til hógværs fagnaðar.

Jónas Reynir Gunnarsson er fæddur 1987. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Egilsstöðum og grunn- og meistaranámi í ritlist frá Háskóla Íslands. Jónas hefur birt ljóð í Tímariti Máls og menningar og Stúdentablaði Háskóla Íslands, þar sem hann hlaut fyrsta sæti í árlegri ljóðakeppni blaðsins 2014. Árið 2015 varð hann hlutskarpastur í leikritunarkeppni sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands með verkinu Við deyjum á Mars og sama ár kom út smásagan Þau stara á mig hjá Partusi. Fyrsta ljóðabók Jónasar, Leiðarvísir um þorp, kom einnig út hjá Partusi haustið 2017, sem og fyrsta skáldsaga hans, Millilending.  Svo skemmtilega vill til að Jónas mun leiða smiðju skálda í alþjóðlega verkefninu Waters and Harbours in the North sem Bókmenntaborgin Reykjavík stendur fyrir vikuna 16. – 21. október.  Skáldin vinna saman að textum sem tengjast hafnarborgum.

Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert