Forsetinn slasaðist í baði

Guðni Th.Jóhannesson forseti Íslands.
Guðni Th.Jóhannesson forseti Íslands. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, varð fyrir slysi í gær þegar hann ætlaði í „heitt og notalegt bað í gærkvöldi“, eins og hann orðar það á facebooksíðu sinni. Reyndist það aðeins of heitt og notalegt að sögn Guðna og endaði með því að það leið yfir hann og lenti hann það harkalega að af hlaust skurður á enni og brákað nef.

Guðni greinir frá þessu á facebooksíðunni, en hann þakkar þar starfsfólki slysadeildarinnar kærlega fyrir saumaskap og aðgæslu. Segir hann líðan sína góða, „þótt glögglega megi greina merki byltunnar“.

Talsverð dagskrá var á Bessastöðum í dag. Guðni tók meðal …
Talsverð dagskrá var á Bessastöðum í dag. Guðni tók meðal annars á móti framkvæmdastjóra Alþjóða veðurstofunnar (WMO), Petteri Taalas. Guðni vísaði til þess að ummerki byltunnar mætti sjá á myndum á vef embættisins frá í dag. Ljósmynd/forseti.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert