„Mikilvægt að grípa inn í strax í upphafi máls“

Halla Bergþóra Björnsdóttir og Kristján Þór Magnússon undirrituðu samstarfsyfirlýsinguna.
Halla Bergþóra Björnsdóttir og Kristján Þór Magnússon undirrituðu samstarfsyfirlýsinguna. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri lögreglunnar á Norðurlandi eystra, og Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra og Norðurþings um átak gegn heimilisofbeldi. 

Um er að ræða átaksverkefni sem hefst frá og með deginum í dag og er gert ráð fyrir að það standi í eitt ár og að árangur verði metinn að því loknu. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Saman munum við vinna að þessu verkefni í samráði við hagsmunasamtök og aðra sem geta lagt verkefninu lið.  Ánægjulegt er að Norðurþing hafi bæst í hópinn, en áður hafa Akureyrarbær, Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð undirritað samskonar samstarfsyfirlýsingu við lögregluembættið. Allt umdæmi Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra er því komið undir sama verklag í heimilsofbeldismálum.

Markmið samstarfsins er að auka þekkingarmiðlun og bæta verklag til að taka á heimilisofbeldismálum, veita þolendum og gerendum betri þjónustu, vernda börn sem búa við heimilisofbeldi, vanda rannsókn lögreglu frá upphafi máls og nýta betur úrræði um brottvísun af heimili og nálgunarbann,“ segir í tilkynningu.

„Í heimilisofbeldismálum er mikilvægt að grípa inn í strax í upphafi máls þegar lögregla er kölluð til, því þar gefst einstakt tækifæri til að hafa áhrif á framhald málsins.  Þar opnast „glugginn“ til að aðstoða þolendur og gerendur svo og að taka málið föstum tökum og koma í veg fyrir ítrekuð brot.

Rannsóknir sýna að börn sem verða vitni að heimilisofbeldi upplifa sálrænt áfall og sýna sömu einkenni kvíða og þunglyndis og börn sem sjálf hafa orðið fyrir ofbeldi.  Lífsreynsla sem þessi fylgir börnum ævina á enda.  Hætt er á að án utankomandi hjálpar geti hún valdið langvinnum erfiðleikum fyrir einstaklinginn.

Það að lögreglan og félagsmálayfirvöld í þessum sveitarfélögum taki höndum saman gefur skýr skilaboð út í samfélagið „um að ofbeldi á heimilum sé ekki liðið“ og gerir okkur sterkari í að takast á við þetta verkefni þannig að það skili meiri árangri,“ segir ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert