Fjölmenn lokahátíð Hróksins í Uummannaq

Ljósmynd/Hrókurinn

Hátíð Hróksins í Uummannaq á Grænlandi lauk á miðvikudag með sirkussýningu og veislu. Yfir 200 bæjarbúar á öllum aldri mættu og skemmtu sér konunglega, að því er segir í tilkynningu frá Hróknum.

Börn úr sirkusskóla léku listir sínar og sýndu hvað þau höfðu lært á örfáum dögum undir leiðsögn sirkuslistamannanna Axels Diego og Bjarna Árnasonar frá Sirkus Íslands. Við sama tækifæri var stofnað skákfélag í Uummannaq, enda mikill áhugi í bænum á skák eftir námskeið og fjöltefli síðustu daga.

Ljósmynd/Hrókurinn

Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins, þakkaði bæjarbúum frábærar móttökur, og sagði að Íslendingar ættu bestu nágranna í heimi. Hann sagði jafnframt að á næstunni yrði stofnaður velferðarsjóður fyrir börnin í Uummannaq og þorpunum í grennd.  Hinn 17. júní gekk gríðarleg flóðbylgja yfir þorpið Nuugaatsiaq sem kostaði fjögur mannslíf.  Fólkið þaðan og úr öðru þorpi getur ekki snúið til síns heima vegna hættu á frekari hamförum, og er íbúarnir, alls um 200, flestir í Uummannaq, sem er 1200 bær, 600 kílómetrum norðan við heimskautsbaug, að því er Hrókurinn greinir frá.

Ljósmynd/Hrókurinn

Fjölmörg börn hafa að undanförnu lært sirkuslistir og skák, auk þess að taka þátt í listsmiðju Ingu Maríu Brynjarsdóttur. Þá heimsóttu leiðangursmenn leikskólann og dvalarheimili aldraðra í Uummannaq, og komu færandi hendi með gjafir frá íslenskum vinum.

Þá færði Hrókurinn hinu nýja skákfélagi mörg taflsett og kennsluefni, auk sirkusáhalda svo börnin geti haldið áfram að æfa sirkuslistina.

Ljósmynd/Hrókurinn

Réne Kristiansen, aðstoðarforstöðumaður Barnaheimilisins í Uummannaq, sem er fyrir börn og ungmenni sem ekki geta dvalið hjá fjölskyldum sínum sagði að heimsókn Hróksins hefði haft mikla þýðingu fyrir bæjarbúa.

„Hér var sannarlega þörf á gleði og hún hefur ríkt í bænum síðustu daga. Það gerist mjög sjaldan að listamenn eða aðrir gleðigjafar leggi leið sína hingað. Ég er þess hinsvegar fullviss um að þetta verður aðeins fyrsta ferð Hróksins hingað og veit að börnin eru strax byrjuð að hlakka til næstu heimsóknar,“ er haft eftir Kristiansen.

Ljósmynd/Hrókurinn
Ljósmynd/Hrókurinn
Ljósmynd/Hrókurinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert