Mest úrkoma í Skagafirði og Fljótum

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Úrkomusamt verður næsta sólarhringinn fyrir norðan á meðan um landið sunnan- og austanvert verður ágætis veður. Þótt ekki verði alveg samfelld rigning norðan til í dag mun rigna nokkuð hressilega, einkum við ströndina, segir á vef Veðurstofu Íslands.

„Í kvöld mun síðan lægðin sem þessu veldur fara af stað til austurs og síðan norðausturs og vindstrengurinn frá henni ná inná norðanvert landið ásamt úrkomuskilum. Þá mun kólna um svipað leiti og því gæti náð að slydda í byggð einnig. 

Einna helst er að sjá að austanverður Skagafjörður og Fljót fái mesta úrkomu í nótt en annars er úrkoman einkum bundinn við annesin fyrir norðan. 
Fyrir hádegi á morgun, laugardag verða síðan skilin og vindstrengurinn kominn austur af landinu og lítt markvert veður í vændum fram yfir helgi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.

Veðurspáin fyrir næstu daga

Norðan og norðvestan 10-18, og rigning norðanlands, talsverð á Ströndum og Mið-Norðurlandi, en styttir upp sunnanlands. Norðvestan 10-20 í kvöld, hvassast við NV-ströndina. Talsverð eða mikil rigning eða slydda um tíma á norðanverðum Tröllaskaga í nótt, en lægir og styttir upp á morgun. SV og V 5-13 annað kvöld, skúrir V-til, en annars þurrt. Hiti víða 3 til 8 stig að deginum, mildast syðst.

Á laugardag:
Vestan og norðvestan 8-15 m/s, en 15-20 við N-ströndina fram eftir degi. Rigning eða slydda um landið norðanvert, en bjart með köflum sunnan til. Lægir og léttir til NV-til seinnipartinn, en um landið NA-vert um kvöldið. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast á Suðausturlandi. 

Á sunnudag og mánudag:
Hæg breytileg átt, en lengst af V 5-10 við NA-ströndina. Bjart með köflum, en lítilsháttar úrkoma vestan til. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn, en líkur á næturfrosti, einkum inn til landsins. 

Á þriðjudag:
Vaxandi suðaustanátt, fyrst suðvestan til. Suðaustan 8-18 um kvöldið, hvassast og rigning við S-ströndina. Hiti 0 til 5 stig N- og A-til, en 3 til 8 annars. 

Á miðvikudag:
Ákveðin austlæg átt en mun hægari seinnipartinn. Rigningu um mest allt land og hiti 2 til 8 stig. 

Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðlæga átt og yfirleitt þurrt, en norðaustanátt og rigning NV-til. Hiti 1 til 8 stig, mildast syðst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert