Veðurmælarnir verða færðir

Mögulegt er að Veðurstofuhúsinu verði breytt í íbúðarhús í framtíðinni.
Mögulegt er að Veðurstofuhúsinu verði breytt í íbúðarhús í framtíðinni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Borgarráð hefur samþykkt drög að samkomulagi milli fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um lóðir kringum Veðurstofu Íslands í Öskjuhlíð annars vegar og Sjómannaskólann (nú Tækniskóla Íslands) við Háteigsveg hins vegar.

Af hálfu ráðuneytisins er samkomulagið gert með fyrirvara um samþykki Alþingis. Með samkomulaginu hafa aðilar sammælst um að ríkið skili þeim hluta leigulóðar sem Veðurstofan þarf ekki að nota undir starfsemi sína til framtíðar.

Borgin mun skipuleggja hluta af svæðinu þannig að þar megi koma fyrir íbúðabyggð sem hentar námsmönnum, tekjulágum og ungu fólki til fyrstu kaupa. Áætlað er að á reitnum geti risið allt að 150 íbúðir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert