Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út skömmu eftir sjö í kvöld vegna elds sem kviknað hafði í ruslagámi á Smiðjuvegi.
Nokkur hætta var talin á að eldurinn myndi berast í nærliggjandi byggingar vegna vindsins. Vel gekk þó að slökkva eldinn og lauk slökkvistarfi á vettvangi fljótt.