Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er nú opinberri heimsókn í Norðurþingi ásamt eiginkonu sinni Elizu Reid. Hann mun koma víða við í heimsókn sinni, en í dag opnaði hann formlega sýningu um sögu hvalveiða og hvalaskoðunar við Ísland á Hvalasafninu á Húsavík. Forsetinn nýtti einnig tækifærið eftir opnunarathöfnina og átti samtal við aðila í ferðaþjónustu á svæðinu í ráðstefnusal Hvalasafnsins.